|
|||
2016-02-11 11:11:05 CET 2016-02-11 11:11:05 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirNiðurstaða úr skuldabréfaútboði ReykjavíkurborgarReykjavíkurborg var með skuldabréfaútboð í flokkum RVK 53 1 og RVKN 35 1 þann 10. febrúar 2016. Alls bárust tilboð í RVK 53 1 að nafnvirði ISK 240.000.000 á bilinu 2,99% - 3,00%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 240.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,00%. Útistandandi fyrir voru ISK 19.040.000.000 að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú ISK 19.280.000.000 að nafnvirði. Alls bárust tilboð í RVKN 35 1 að nafnvirði ISK 360.000.000 á bilinu 6,55% - 7,00%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum. Heildarstærð flokksins er óbreytt ISK 1.700.000.000 að nafnvirði. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 Netfang: bbs@rvk.is |
|||
|