|
||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
2017-09-18 11:00:09 CEST 2017-09-18 11:00:09 CEST SÄÄNNELTY TIETO Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 37 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.273.570 eigin hluti að kaupverð 36.818.442 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017. Sjóvá átti 53.569.835 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 55.843.405 eigin hluti eða sem nemur 3,75% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 47.761.873 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 3,20% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 847.173.665 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 |
||||||||||||||||||||||||||||||
|