2010-05-21 22:32:11 CEST

2011-09-16 12:28:26 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Minutes of extraordinary general meeting (is)

Niðurstaða aðalfundar 21. maí 2010


Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 21. maí, var skýrsla stjórnar og
ársreikningur fyrir árið 2009 samþykkt samhljóða. 

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar:
Bragi Hannesson

Meðstjórnendur:
Árni Vilhjálmsson
Jón Guðmann Pétursson
Kristján Loftsson 
Sigurgeir Guðmannsson 

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar samhljóða:  

1.  Tillaga um greiðslu arðs.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 21. maí 2010 samþykkir að greiddur verði
12% arður vegna ársins 2009, alls að fjárhæð kr. 59.591.167.  Arðurinn verði
greiddur í viku 23.  Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er
21. maí., þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá
félagsins á arðsréttindadeginum 27. maí. Arðleysisdagurinn er 25. maí. 

2.  Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið
ár verði kr. 700.000, formaður taki þrefaldan hlut. 

3.  Tillaga um endurskoðunarfélag.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf. endurskoðunarfélag
félagsins. 

4.  Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 21. maí 2010 veitir stjórn félagsins
heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu.  Heimild þessi stendur í 18 mánuði
og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé
félagsins á hverjum tíma.  Kaupverð hluta skal vera hæst  15% yfir síðasta
þekktu söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.