2015-07-16 17:05:36 CEST

2015-07-16 17:06:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýr forstjóri Íbúðalánasjóðs


Stjórn Íbúðalánssjóðs hefur ráðið Hermann Jónasson sem forstjóra sjóðsins.

Hermann er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands (1995), héraðsdómslögmaður
(2000) og löggiltur verðbréfamiðlari frá Háskólanum í Reykjavík (2003). 

Hermann starfaði:

  -- hjá Fjármálaráðuneytinu sem lögfræðingur á Tekju- og lagaskrifstofu
     ráðuneytisins (1995-2000),
  -- hjá Landsbréfum hf. sem forstöðumaður Verðbréfasviðs (2000-2002), 
  -- hjá Landsbanka Íslands hf. sem forstöðumaður Verðbréfaþjónustu og
     Sérbankaþjónustu auk þess að vera framkvæmdastjóri Íslenska
     lífeyrissjóðsins (2002-2004),
  -- hjá Landsbanka Íslands hf. sem framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs
     (2004-2008)
  -- hjá Tal hf. sem forstjóri og leiddi þar m.a. sameiningu
     fjarskiptafyrirtækjanna Hive og Sko (2008-2010)
  -- hjá Arion banka hf. sem framkvæmdastjóri Þróunar- og markaðssviðs
     (2010-2011)
  -- hjá Lögfræðistofu Jónatansson & co. að lögfræðistörfum fyrir
     slitastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. (2011-2015)

Hermann er giftur Guðrúnu Sigtryggsdóttur, yfirlögfræðingi hjá skóla- og
frístundasviði Reykjavíkurborgar og saman eiga þau þrjár dætur. 

Hermann mun hefja störf hjá Íbúðalánasjóði n.k. mánudag 20. júlí.