2024-05-15 11:36:54 CEST

2024-05-15 11:36:54 CEST


Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fjárhagsdagatal

REITIR: Kynningarfundur vegna birtingar uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2024.


Reitir birta árshlutauppgjör vegna fyrsta fjórðungs 2024 eftir lokun markaða í dag, miðvikudaginn 15. maí.

Af því tilefni er fjárfestum og markaðsaðilum boðið til fundar þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið.

Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 á morgun, fimmtudaginn 16. maí, á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum er jafnframt streymt í gegnum netið á slóðinni  https://vimeo.com/event/4304312/embed/7626b667e9/interaction.

Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í 669 4416 eða einar@reitir.is.