2016-04-21 17:16:40 CEST

2016-04-21 17:16:40 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Hampiðjan hf. – Upplýsingar um framgang kaupanna á P/f Von


Þann 15. mars síðastliðinn tilkynnti Hampiðjan um að félagið hefði gengið frá
kaupum á 73,381% eignarhlut í færeyska fyrirtækinu P/f Von. Áætlað var að
endanlegur frágangur og uppgjör vegna kaupanna myndi eiga sér stað eigi síðar
en 22. apríl 2016. Nú liggur fyrir að sú dagsetning mun frestast um
ótilgreindan tíma þar sem fyrirvörum vegna kaupanna sem lúta að samþykki
samkeppnisyfirvalda hefur ekki verið aflétt að fullu. Samkeppniseftirlit
Færeyja hefur samþykkt viðskiptin en beðið er eftir áliti samkeppnisyfirvalda á
Íslandi og í Litháen. Einnig er vinna við áreiðanleikakannanir vegna kaupanna
enn í gangi. Félagið hefur jafnframt gengið frá skuldbindandi kauptilboði á
22,321% hlut af minnihlutaeigendum, sem háð er sömu fyrirvörum. 



Nánari upplýsingar veitir:

Hjörtur Erlendsson,
forstjóri Hampiðjunnar,
sími 664 3361