|
|||
2009-09-30 15:38:15 CEST 2009-09-30 15:39:14 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir- SPM sækir um heimild til að leita nauðasamninga.Sparisjóði Mýrasýslu (SPM), kt. 610269-5409, með lögheimili að Digranesgötu 2, 310 Borgarnes, var með ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hinn 2. júlí 2009 skipuð bráðabirgðastjórn, með vísan til ákvæða laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 með síðari breytingum.Eins og fram kom á fundi bráðabirgðastjórnar með kröfuhöfum þann 22. september sl. ráðgerði bráðabirgðastjórn að óska eftir heimild héraðsdóms til að leita nauðasamninga fyrir SPM ef nægilegur fjöldi kröfuhafa veitti meðmæli með nauðasamningsumleitunum. Tilskilinn fjöldi kröfuhafa bæði að fjárhæð og fjölda hefur nú veitt meðmæli fyrir því að óskað verði heimildar til nauðasamninga á grundvelli þess frumvarps er kynnt hefur verið kröfuhöfum. Hefur bráðabirgðastjórn SPM því nú sent beiðni um heimild til að leita nauðasamninga skv. l. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. til Héraðsdóms Vesturlands. Verður beiðnin tekin fyrir í Héraðsdómi Vesturlands, Borgarnesi, í dag, miðvikudaginn 30. september 2009. Verði sparisjóðnum veitt heimild til að leita nauðasamninga framlengist umboð bráðabirgðastjórnar SPM skv. 100. gr. a l. 161/2002 um fjármálafyrirtæki þar til einn mánuður er liðinn frá því þeirri heimild lýkur. F.h. bráðabirgðastjórnar SPM Sigurður R. Arnalds hrl., formaður |
|||
|