|
|||
2009-04-08 00:23:13 CEST 2009-04-08 00:25:24 CEST REGULATED INFORMATION Atorka Group hf. - FyrirtækjafréttirFramlenging á kyrrstöðusamningiÞann 25. mars sl. tilkynnti Atorka Group hf. (Atorka) um framlengingu á kyrrstöðusamningi til 31. mars 2009. Atorka hefur ásamt stærstu kröfuhöfunum unnið að áframhaldandi framlengingu á kyrrstöðusamningnum, auk þess að ræða við aðra lánardrottna um aðild að samningnum. Í dag náðist samkomulag um að framlengja kyrrstöðusamningnum til 30. apríl n.k. Fram að þeim tíma mun Atorka ásamt aðilum kyrrstöðusamningsins vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Á bak við kyrrstöðusamninginn standa lánadrottnar sem eiga 98% af kröfum á hendur félaginu. Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 540-6200 |
|||
|