2009-08-24 16:53:51 CEST

2009-08-24 16:54:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Jeratún ehf. - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta
staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á síðasta reikningsári. 

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2009
var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 24. ágúst 2009. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Tap félagsins á fyrrihluta ársins 2009 var 17.031 þús. kr. og í lok þess var
eigið fé neikvætt um sem nam 40.469 þús. kr. samkvæmt árshlutareikningi. Ástæða
fyrir þessu tapi má rekja til mikils  fjármagnskostnaðar og of lágrar
húsaleigu. Á hluthafafundi í félaginu var hlutafé aukið um 38 milljónir. 
Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
fyrirvara. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 516,8 millj.
kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á
greiðslu lánanna. 

Ásgeir Valdimarsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.