2014-03-31 18:01:00 CEST

2014-03-31 18:01:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð á verðtryggðum skuldabréfaflokki RIKS 33 0321 í tengslum við losun gjaldeyrishafta


Lánamál ríkisins munu bjóða verðtryggðan flokk ríkisbréfa RIKS 33 0321 í
tengslum við gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður hinn 14. maí
2014. 

Vakin er athygli á breytingum á útboðsskilmálum frá síðasta útboði:

  -- Heildarfjárhæð tekinna tilboða í ríkisverðbréfaleiðinni takmarkast við ISK
     400 milljónir.
  -- Útboð samkvæmt ríkisverðbréfaleið og fjárfestingarleið munu hefjast kl.
     9:30 og standa til kl. 10:30.
  -- Útboð þar sem Seðlabankinn kaupir íslenskar krónur fyrir erlendan gjaldeyri
     mun hefjast kl. 10:45 og standa til kl. 11:30.
  -- Uppgjör útboðanna þriggja sem fara fram á miðvikudegi að þessu sinni verður
     föstudaginn 16. maí (t+2).

Söluverð á flokknum fyrir gjaldeyrisútboðið verður tilkynnt eftir lokun markaða
kl. 16:00 þann 12. maí 2014. 



Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.