2011-12-30 15:36:00 CET

2011-12-30 15:37:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eyrir Invest ehf. - Fyrirtækjafréttir

Eyrir Invest tryggir fjármögnun til lengri tíma


Eyrir Invest ehf. hefur samið um langtímalán við Arion banka hf. Lánið er í
upphafi í íslenskum krónum að fjárhæð 2 milljarðar króna (12,5 m evra). Lánið
er tryggt með veði í skráðum hlutabréfum og ber REIBOR + 2,5% vexti. Vextir
greiðast á 6 mánaða fresti og höfuðstóll lánsins er á gjalddaga í maí 2015.
Ákvæði er um framlengingu á helmingi höfuðstólsins til 2016. 

Eyrir hefur í dag einnig samið við Glitni banka hf. um framlengingu á bankaláni
upp á 14 milljónir evra. Lánið er tryggt með veði í skráðum hlutabréfum og ber
EURIBOR + 3,75% vexti sem greiðast á 3 mánaða fresti. Nýr gjalddagi höfuðstóls
lánsins er í desember 2013 í stað september 2012. 

Gert er ráð fyrir að skuldabréfaflokkurinn EYRI 11 1, að fjárhæð ríflega 1
milljarður króna, verði tekinn til skráningar og viðskipta á Nasdaq OMX á
Íslandi í upphafi árs 2012. 

Lántakan, framlengingin og skráning skuldabréfanna er hluti af lána- og
lausafjárstýringu Eyris Invest. 

Um Eyrir Invest

Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku
í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 36%
hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork
Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið
vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu. „Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna
Eyris hefur skilað góðri ávöxtun frá stofnun félagsins árið 2000 

www.eyrir.is