2010-02-12 09:35:13 CET

2010-02-12 09:36:14 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Ársreikningur 2009


- Hagnaður ársins nam 1.471 milljónum króna -

Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.471 mkr.  fyrir árið
2009 samanborið við tap að fjárhæð 12.780 mkr. á árinu 2008. Betri afkoma
stafar aðallega af mun minna gengistapi en á fyrra ári auk þess sem tekjur af
raforkuflutningi hafa aukist. 

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 9.331 mkr.
samanborið 7.066 mkr. á fyrra ári. 

Eiginfjárhlutfall í árslok var 11,3% samanborið við 10,5% í lok fyrra árs.
Eigið fé í árslok nam 8.321 mkr. samanborið við 7.274 í lok árs 2008.

Heildareignir félagsins í árslok námu 73.675 mkr. samanborið við 69.384 mkr. í
lok fyrra árs. Heildarskuldir námu 65.354 mkr.  samanborið við 62.109 mkr. í
lok fyrra árs. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í árslok nam handbært fé 5.864 mkr. Handbært
fé frá rekstri nam 7.519 mkr. árið 2009 samanborið við 5.760 mkr. árið 2008. 
Rekstrarhæfi félagsins er mjög gott. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2010
mun handbært fé frá rekstri standa undir fjárfestingum og  afborgunum, auk þess
sem gert er ráð fyrir að skuldir muni lækka. 

Ársreikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 11. febrúar 2010.

Helstu niðurstöður rekstrarreiknings, lykiltölur efnahagsreiknings og
kennitölur (fjárhæðir eru í þúsundum króna): Sjá viðhengi.


Frekari upplýsingar veitir: 
Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is