|
|||
2011-07-13 13:45:44 CEST 2011-07-13 13:46:46 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 11 1017 og RIKV 12 0116Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 11 1017 og RIKV 12 0116 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 11 1017: Alls bárust 22 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 13.862 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 12.862 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,225 (flatir vextir 2,99%). RIKV 12 0116: Alls bárust 17 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.500 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.000 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,582 (flatir vextir 2,80%). |
|||
|