|
|||
2008-08-29 11:15:15 CEST 2008-08-29 11:16:16 CEST REGULATED INFORMATION Opin Kerfi Group hf. - Ársreikningur- 6 mánaða uppgjör 2008Stjórn Opin Kerfi Group hefur gengið frá ársreikningi félagsins fyrir tímabilið 1.janúar - 30.júní 2008 og hefur hann fengið fyrirvaralausa könnunaráritun löggiltra endurskoðenda þess. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla IFRS. Opin Kerfi Group hf Heildar rekstrartekjur Opin Kerfi Group á fyrri helmingi ársins 2008 var 4.805 milljónir króna, samanborið við 6.251 milljónir króna fyrir sama tímabil árið. Allar tekjur félagsins eiga nú uppruna sinn í erlendri starfsemi félagins en árinu áður var það hlutfall í kringum 75%. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var jákvæð um 186 milljónir króna samanborið við 131 milljónir í hagnað árið áður. Forráðamenn félagsins gera ráð fyrir að rekstur félagsins verði töluvert betri á yfirstandandi ári en á árinu 2007. Hagnaður samstæðunnar eftir skatta og óreglulega starfssemi var 318 milljónir króna á tímabilinu en var á fyrra ári fyrir sama tímabil 59 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall félagsins er 50,2% og arðsemi eigin fjár 11,87% sem er hærra en á fyrra ári. Fjöldi starfsmanna var á tímabilinu um 348. Dótturfélög Opin Kerfi Group hf samanstendur í dag af móðurfélaginu og tveimur rekstrarfélögum sem eru Kerfi AB í Svíþjóð og Kerfi A/S í Danmörku. Kerfi AB Rekstrartekjur Kerfi AB í sænskum krónum talin fyrir fyrstu 6md ársins eru 324mkr í stað 339m fyrir sama tímabil á árinu 2007. EBIDTA hækkaði verulega milli ára eða úr 5,5 SEK í 23,7m SEK fyrir sama tímabil. Endurskipulagning félagsins hófst með ráðningu nýs forstjóra í lok árs 2007 sem hefur skilað sér í lægri rekstrarkostnaði og auknum hagnaði. Horfur í Svíþjóð eru að tekjurnar muni aukast eitthvað á árinu og áfram er unnið að lækkun kostnaðar og endurskipulagningar í rekstri. Horfur er á að afkoman verði mun betri í ár en á því síðasta. Forstjóri í Kerfi AB er Harri Kahkonen. Kerfi A/S Velta Kerfi A/S hefur lækkað milli ára og er nú í dönskum krónum talið 66,9 milljónir króna en var á sama tímabili í fyrra 99,6 milljónir. EBITDA er neikvæð um 6 m dkk en var á sama tímabili í fyrra neikvæð um 1m dkk. Miklar breytingar hafa verið hjá fyrirtækinu það sem af er ársins en í febrúar tók nýr forstjóri til starfa og hefur hann unnið að stefnumótun og endurskipulagningu á fyrirtækinu síðan. Sér nú fyrir endan á þeirri endurskipulagningu sem gert er ráð fyrir að skili sér í betri rekstrarniðurstöðu á næstu mánuðum. Forstjóri Kerfi A/S ráðinn 1.febrúar 2008, er Steen Louis Reinholdt Í stjórn Opin Kerfi Group hf sitja Þórdís Sigurðardóttir formaður, Sigríður Olgeirsdóttir og Soffía Lárusdóttir. Elín Þórðardóttir er forstjóri Opin Kerfi Group hf (elintho@simnet.is) og veitir hún nánari upplýsingar í síma 898 6319 |
|||
|