2017-01-31 13:47:25 CET

2017-01-31 13:47:25 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Fiskþurrkun hætt


Fyrirhugaðar framkvæmdir við fiskþurrkun á Akranesi hafa verið lagðar til
hliðar. HB Grandi hætti að þurrka fisk á Akranesi í apríl síðastliðnum vegna
markaðsaðstæðna en markaður fyrir þurrkaðar afurðir hefur verið mjög erfiður
vegna lítillar kaupgetu í Nígeríu og virðist ekki vera að sækja í sig veðrið. 

Þegar þurrkun var hætt störfuðu 26 manns við hana. Þrettán þeirra var tryggð
atvinna í öðrum starfsstöðvum HB Granda á Akranesi en hinir hafa unnið við
tilraunavinnslu í húsi fiskþurrkunarinnar. Þeim hefur nú einnig verið boðin
vinna í öðrum starfstöðvum félagsins. 

Nánari upplýsingar veitir: Jónas Guðbjörnsson fjármálastjóri, s: 858-1031