2011-08-11 13:47:05 CEST

2011-08-11 13:48:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 11 1115 og RIKV 12 0215


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 11 1115 og RIKV 12 0215 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 11 1115:
Alls bárust 23 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 18.737 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 17.237 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,239 (flatir
vextir 3,00%). 

RIKV 12 0215:
Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.950 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 2.450 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,490 (flatir
vextir 3,00%).