|
|||
2015-08-04 10:00:00 CEST 2015-08-04 10:00:38 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 31 keyptu Fjarskipti hf. 300.000 eigin hluti að kaupverði 12.135.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 29.7.2015 15:05 205.775 40,45 8.323.599 -------------------------------------------------------------------- 29.7.2015 15:06 94.225 40,45 3.811.401 -------------------------------------------------------------------- Samtals 300.000 12.135.000 Fjarskipti áttu 1.507.495 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 1.807.495 eigin hluti eða sem nemur 0,54% af útgefnum hlutum í félaginu. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Fjarskipta sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júlí 2015. Fjarskipti hafa keypt samtals 1.468.495 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,4% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 58.260.705 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 10.300.000 hlutum eða sem nemur 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 400.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 31. desember 2015 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#1943021] |
|||
|