|
|||
2015-01-08 15:04:54 CET 2015-01-08 15:05:57 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚtgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrri hluta árs 2015Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2015 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 2.190 mkr. vegna framkvæmda. Gert er ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokki RVK 53 1. Heildarstærð flokksins er nú ISK 18.690.000.000 að nafnvirði. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 8. janúar 2015 eftirfarandi útboðsdagsetningar fyrir fyrri hluta árs 2015. Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar verða á eftirfarandi dögum: 14. janúar, 11. febrúar, 11. mars, 15. apríl og 6. maí. Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 411-1111 |
|||
|