2012-05-14 11:30:47 CEST

2012-05-14 11:31:48 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Arion banki hf. lýkur skuldabréfaútboði


Arion banki hf. lauk á föstudag, þann 11. maí, fyrsta útboði bankans á
sértryggðum skuldabréfum sem eru óverðtryggð. Alls voru seld skuldabréf til
fagfjárfesta fyrir 1220 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum Arion CB
15. 

Stefnt er að því að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á NASDAQ
OMX Íslandi nú í maí. Nánari upplýsingar um skráninguna verða kynntar síðar.
Skuldabréfin bera 6,50% óverðtryggða vexti og eru á lokagjalddaga árið 2015. 

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Með útgáfunni nú gefur Arion banki fyrstur banka hér á landi út sértryggð
skuldabréf sem eru óverðtryggð. Bankinn hefur sýnt frumkvæði á íbúðalánamarkaði
þegar kemur að óverðtryggðum íbúðalánum og kynnt til leiks fjölda nýjunga.
Útboðið nú kemur þar í rökréttu framhaldi. Útboðið er enn einn liðurinn í að
auka fjölbreytni í fjármögnun bankans.“ 


Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka,
s: 856 7108, haraldur.eidsson@arionbanki.is.