2013-09-16 12:40:28 CEST

2013-09-16 12:41:29 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Company Announcement (is)

HB Grandi hefur samið um smíði tveggja skipa


HB Grandi hefur samið um smíði tveggja skipa til veiða á uppsjávarfiski með
fyrirvara um ábyrgðir af beggja hálfu. Skipin verða afhent 2015. Það fyrra í
ársbyrjun en það seinna um haustið. 

Fyrra skipið mun leysa af hólmi tvö 53 ára gömul skip, Víking og Lundey.
Ákvörðun um frekari rekstur Faxa og Ingunnar verður tekin þegar nær dregur
seinni afhendingunni. Með nýjum skipum næst betri meðferð afla. Til dæmis
verður dælt úr poka frá skut. 

Samið var við skipasmíðastöðina Celiktrans Denis Insaat í Tuzla, Tyrklandi.
Skipin eru 80 metra löng og 17 metra breið.  Þau eru eru búin öflugri kæligetu
eða 2 x 1.300.000 kcal/klst. fyrir 12 kælilestar sem eru alls 2.900 rúmmetrar.
Aðalvélin er 4.600 kw. Samningsverðið er 44,5 milljónir € eða um 7,2 milljarðar
króna.