2017-09-07 17:31:48 CEST

2017-09-07 17:31:48 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Skeljungur hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Skeljungur: Hendrik Egholm ráðinn nýr forstjóri Skeljungs hf. frá og með 1. október nk.


Stjórn Skeljungs hf. hefur ráðið Hendrik Egholm nýjan forstjóra félagsins.

Hendrik  Egholm hefur verið framkvæmdastjóri  P/F Magn, dótturfélags Skeljungs í
Færeyjum,  síðastliðin 10 ár og leitt þar hvert  metárið í rekstri á fætur öðru.
Áður  var Hendrik sölu- og markaðsstjóri hjá  P/F Smyril Line til þriggja ára og
jafnframt   hefur  hann  unnið  hjá  Velux,  við  alþjóðasölu.  Hendrik  er  með
meistaragráðu  í alþjóðlegri markaðssetningu og stjórnun frá Copenhagen Business
School.  Hann hefur jafnframt sótt fjölbreytta viðbótarmenntun hjá London School
of  Economics and Political Science, Oxford  Said Business School, IMD og London
Business School.

Gert  er ráð  fyrir að  Hendrik hefji  störf hjá  Skeljungi þann  1. október nk.
Valgeir  M. Baldursson mun starfa sem forstjóri Skeljungs fram að þeim tíma og í
framhaldinu vera stjórn og nýjum forstjóra innan handar.



Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs:

Ég  hef í starfi mínu sem forstjóri Magn haft góð kynni af rekstri Skeljungs. Ég
hlakka  til að vinna á breiðari grundvelli með þeim frábæra hópi starfsfólks sem
Skeljungur  og Magn hafa á að skipa og byggja ofan á þann góða árangur sem náðst
hefur   í   rekstri  samstæðunnar.  Miklir  möguleikar  til  frekari  sóknar  og
verðmætasköpunar  eru  fyrir  hendi  á  þeim  mörkuðum  sem samstæðan starfar og
spennandi tímar framundan fyrir félagið.



Jón Diðrik Jónsson, stjórnarformaður Skeljungs:

Við  teljum það  afar góðar  fréttir fyrir  Skeljung og  alla haghafa þess að fá
Hendrik  til að leiða  félagið í gegnum  þær breytingar sem  framundan eru. Hann
hefur  sýnt það og  sannað í störfum  sínum hjá Magn  hversu öflugur og framsýnn
stjórnandi hann er. Stjórn Skeljungs hlakkar til samstarfsins.



Nánari upplýsingar veitir Ingunn Agnes Kro, regluvörður, s: 840-3022,
iak@skeljungur.is.




[]