2017-09-07 18:27:43 CEST

2017-09-07 18:27:43 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
N1 hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

N1 hf: N1 kaupir Klettagarða 13


N1  keypti í dag fasteignina  að Klettagörðum 13 af FAST-2 ehf.  Í lok árs 2012
seldi  N1 FAST-2 ehf. eignina  en samhliða sölunni  leigði félagið hana til baka
til  10 ára  með  kauprétti  að  henni  eftir  5 ár  og  aftur í lok leigutíma á
framreiknuðu söluverði. Fasteignin er 8.926 fermetrar og er að mestu notuð undir
vöruhúsastarfsemi   félagsins  en  þar  er  einnig  fyrirtækjaverslun.  Kaupverð
eignarinnar  er  1.653 m.kr.  sem  samsvarar um 7,3% arðsemi fjárfestingarinnar.
EBITDA félagsins hækkar við kaupin um 90 m.kr. og handbært fé frá rekstri hækkar
um 120 m.kr. á ársgrundvelli, að öðru óbreyttu.




[]