2017-09-11 11:00:01 CEST

2017-09-11 11:00:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í viku 36 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 4.291.000 eigin hluti að kaupverð 68.126.900 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
4.9.2017 10:38:15 19.066 15,9 303.149
4.9.2017 10:39:42 980.934 15,9 15.596.851
4.9.2017 10:50:59 20.000 15,8 316.000
4.9.2017 15:10:36 980.000 15,8 15.484.000
6.9.2017 15:14:35 1.000.000 15,95 15.950.000
7.9.2017 15:24:46 291.000 15,9 4.626.900
8.9.2017 11:22:52 1.000.000 15,85 15.850.000
Samtals   4.291.000   68.126.900

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.

Sjóvá átti 49.278.835 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 53.569.835 eigin hluti eða sem nemur 3,59% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 45.488.303 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 3,05% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 810.355.223 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is