|
|||
2013-09-30 16:26:13 CEST 2013-09-30 16:31:15 CEST REGULATED INFORMATION FÍ Fasteignafélag slhf. - FyrirtækjafréttirFÍ Fasteignafélag hefur birt viðauka við útgáfulýsingu skuldabréfaFÍ Fasteignafélag slhf. hefur birt viðauka við útgáfulýsingu skuldabréfa, FIF 13 01, sem skráð eru á skipulegan verðbréfamarkað, NASDAQ OMX Iceland hf. Í orðalagi skilgreininga í kafla 2.2. „Auðkenni útgáfunnar, nafnverð svo og önnur skilyrði sem varða útgáfuna og skuldbinda útgefanda“, í öðrum kafla útgáfulýsingarinnar sem nefnist „Upplýsingar um útgáfuna“ kemur fram að grunnvísitala skuldabréfanna er vísitala neysluverðs til verðtryggingar (VNV) þann 20. júlí. Vísitalan þann 20. júlí var 412,6933, en í útgáfulýsingunni var misritað 414,6933. Því gerir útgefandi eftirfarandi breytingu á útgáfulýsingunni: Skilgreiningunni „Verðtrygging og grunnvísitala“ er breytt þannig að tölugildinu er breytt úr „414,6933“ í „412,6933“. Hljóðar því skilgreiningin svo eftir breytingu: Verðtrygging og Skuldabréfin eru bundin við vísitölu neysluverðs til grunnvísitala: verðtryggingar (VNV). Grunnvísitala skuldabréfanna er VNV þann 20. júlí, 412,6933. Útgáfulýsingin, dagsett 23. júlí 2013, og viðaukar við hana, dagsettir 29. ágúst, 12. september og 27. september eru gefnir út á íslensku og birtir á vefsíðu FÍ, fifasteignir.is. Skjölin má nálgast á pappírsformi hjá útgefanda, FÍ Fasteignafélagi, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík næstu 12 mánuði frá 27. september 2013. |
|||
|