|
|||
![]() |
|||
2013-07-26 18:13:00 CEST 2013-07-26 18:14:01 CEST SÄÄNNELTY TIETO Nýherji hf. - ÁrsreikningurUppgjör Nýherja á fyrri árshelmingi 2013Tap í Danmörku veldur virðisrýrnun á viðskiptavild, en innlendur rekstur yfir áætlun Helstu upplýsingar: -- EBITDA 147 mkr á fyrri árshelmingi borið saman við 210 mkr fyrir sama tímabil í fyrra -- EBITDA 125 mkr á öðrum ársfjórðungi samanborið við 87 mkr fyrir sama tímabil í fyrra -- 986 mkr heildartap á fyrri árshelmingi 2013 -- 835 mkr gjaldfærsla viðskiptavildar vegna Applicon A/S -- Eigið fé samstæðunnar nemur 1.287 mkr og eiginfjárhlutfall 19,0% Rekstrarniðurstaða á fyrri árshelmingi 2013: Sjá viðhengi. Þórður Sverrisson, forstjóri: „Tvennt einkennir uppgjör fyrri árshelmings. Annars vegar er 835 mkr gjaldfærsla á eignfærðri viðskiptavild Applicon A/S í Danmörku, en áætlanir um afkomu hafa ekki gengið eftir. Hins vegar er afkoma góð og samkvæmt áætlun af innlendum rekstri Nýherja, Applicon og TM Software auk danska félagsins Dansupport á fyrri árshelmingi og er EBITDA 253 mkr á fyrri árshelmingi hjá innlendum félögum samstæðunnar. Umtalsvert tap er af rekstri Applicon dótturfélaga erlendis og verður áhersla lögð á samhæfingu í starfsemi Applicon félaganna í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi. Þær fjölmörgu vörur og lausnir sem fyrirtækin hafa þróað verða samnýttar betur með áherslu á að efla starfsemina í Danmörku.“ Nánari upplýsingar: Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630. |
|||
|