2024-05-31 14:15:00 CEST

2024-05-31 14:15:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Útboð á almennum skuldabréfum í íslenskum krónum


Arion banki heldur lokað útboð á almennum skuldabréfaflokki ARION 28 1215 miðvikudaginn 12. júní 2024.

ARION 28 1215 er verðtryggður flokkur almennra skuldabréfa (e. senior preferred) sem ber fasta 4,35% verðtryggða vexti með vaxtagreiðslum tvisvar á ári og var upphaflega gefinn út í desember 2023. Lokagjalddagi er 15. desember 2028.

Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að skuldabréfin verða seld á fyrirframákveðnu hreinu verði sem tilkynnt verður eftir lokun markaða 11. júní 2024. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.

Áætlaður uppgjörsdagur er 18. júní 2024.

Útgáfan verður gefin út undir 3,0 milljarða evra Euro Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu EMTN rammans má nálgast hér.

Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 12. júní 2024.