2012-09-07 16:08:08 CEST

2012-09-07 16:09:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Reykjaneshöfn greiðir niður skuldir


Þann 28. ágúst s.l. tilkynnti Reykjanesbær um sölu á 6,3 milljarða króna
skuldabréfi sem bæjarfélagið eignaðist árið 2009 við sölu á eignarhlut í HS
Orku. Skuldari bréfsins er Magma Energy Sweden. 

Ákvæði í lánaskjölum Reykjaneshafnar og í skilmálum skuldabréfaflokkanna RNH 16
1015 og RNH 27 0415 skuldbinda Reykjanesbæ til þess að lána til hafnarinnar
fjórðung af þeim fjármunum sem falla til við söluna á ofangreindu skuldabréfi. 

Við söluna fékk Reykjanesbær um 3,5 milljarða króna í peningum og um 500
milljónir í markaðsskuldabréfum, en eftirstöðvar söluverðsins koma til greiðslu
árið 2017. Í samræmi við ofangreindar skuldbindingar mun Reykjanesbær veita
Reykjaneshöfn víkjandi lán að fjárhæð 870 milljónir króna, eða sem samsvarar
25% af þeim peningum sem Reykjanesbær fékk í hendur við sölu bréfsins. 

Reykjaneshöfn hyggst nýta um 700 milljónir króna af þessu láni til endurkaupa á
skráðum skuldabréfum og til greiðslu inn á lánasamninga. Með þessu er verið að
létta greiðslubyrði næstu ára og styrkja rekstrarhæfi hafnarinnar. Uppgjör
vegna endurkaupa mun fara fram þann 15. nóvember 2012. Reykjaneshöfn hefur
tilnefnt Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. sem umboðsmann sinn til að hafa
milligöngu um að handhafar skuldabréfa geti neytt fjárhagslegra réttinda sinna.
Fulltrúi Centra er Sigurður Harðarson, sími 450 1507. 

Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og
hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.