2016-02-15 17:09:29 CET

2016-02-15 17:09:29 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf.: Rekstraráætlun 2016


Stjórnendur Eikar fasteignafélags hf. hafa gert rekstraráætlun fyrir árið 2016.
Helstu tölur úr henni eru:

  * Tekjur verða 6.879 m.kr.
  * Gjöld verða 2.041 m.kr.
  * Skrifstofu og stjórnunarkostnaður verður 305. m.kr
  * Rekstrarhagnaður fyrir viðhald verður 4.533 m.kr.
  * Viðhald og endurbætur verða 313 m.kr.
  * EBITDA verður 4.483 m.kr.

Um rekstraráætlunina

Leigutekjur ársins eru áætlaðar miðað við gildandi leigusamninga við birtingu
spárinnar ásamt spá um breytingar á leigusamningum innan ársins 2016.

Það er Eik fasteignafélagi ánægjuefni að tilkynna um, að í dag 15. febrúar
2016, hafi náðst samkomulag um endurnýjun leigusamninga við Símann og Mílu.
Samkomulagið felur í sér að leigusamningar eru lengdir, Síminn skilar hluta af
því húsnæði sem félagið er með í leigu í dag í áföngum á árinu 2016 ásamt því að
leiguverð eftirstandandi samninga mun lækka. Nánar er farið út í endurnýjunina í
rekstraráætluninni.

Meðfylgjandi rekstraráætlun ársins tekur tillit til nýgerðra samninga við Símann
og Mílu ásamt nýlegra kaupa félagsins á Heimshótelum ehf. og Hóteli 1919 ehf.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 /
820 8980


[HUG#1986162]