2014-03-25 17:36:05 CET

2014-03-25 17:37:06 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Fyrirtækjafréttir

Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Samningur um viðskiptavakt


Helstu skilmálar viðskiptavaktar með hlutabréf í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
(„Sjóvá“ eða „félagið“) 



Stjórn Sjóvár hefur sótt um töku hlutabréfa í félaginu til viðskipta á
Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Reiknað er með að viðskipti með bréfin geti
hafist þann 11. apríl 2014 hið fyrsta. Í tengslum við skráninguna hefur félagið
gert samninga við Íslandsbanka hf. og Landsbankann hf. um viðskiptavakt með
hlutabréf í félaginu. Samningarnir taka gildi þegar hlutir í Sjóvá hafa verið
teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Viðskiptavaktirnar eru
fyrir eigin reikning framangreindra banka og greiðir félagið þóknun fyrir þessa
þjónustu. Samningarnir kveða á um að viðskiptavakarnir skuli setja fram kaup-
og sölutilboð í hluti í Sjóvá á hverjum viðskiptadegi Kauphallarinnar. 

Fjárhæð kaup- og sölutilboða viðskiptavaka skal vera að lágmarki í 1.000.000
hluti á gengi sem hvor viðskiptavaki fyrir sig ákveður, frávik frá síðasta
skráða viðskiptagengi skal þó ekki vera meira en 3%. Hámarksmunur kaup- og
sölutilboða er 1,5%. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er og eigi
síðar en 10 mínútum eftir að þeim er tekið að fullu. Ef viðskipti viðskiptavaka
með bréf í félaginu, sem fara um eigin viðskipti (veltubækur) viðskiptavaka,
fara yfir 8.000.000 hluti innan dags fellur niður skylda um hámarksmun kaup- og
sölutilboða innan þess dags hjá Íslandsbanka og skylda um að endurnýja tilboð
þann dag hjá Landsbanka. Ef verðbreyting á hlutabréfum Sjóvár innan dags nær
10% er Landsbankanum heimilt að tvöfalda hámarksverðbil milli kaup- og
sölutilboða tímabundið þann dag. Samningur Sjóvár og Íslandsbanka er
ótímabundinn en uppsegjanlegur af beggja hálfu með fjórtán daga fyrirvara.
Samningur Sjóvár og Landsbankans er ótímabundinn en uppsegjanlegur af beggja
hálfu með eins mánaðar fyrirvara. 



Nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga, í síma
440-2135 eða í netfangið thordur.palsson@sjova.is