2011-04-29 10:48:22 CEST

2011-04-29 10:49:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rangárþing ytra - Ársreikningur

Ársreikningur Rangáþings ytra fyrir árið 2010


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2010 var tekinn til fyrri umræðu á
fundi sveitarstjórnar fimmtudaginn 28. apríl 2010 og vísað til seinni umræðu en
samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikning sveitarfélags á
tveimur fundum í sveitarstjórn. 

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikninga fyrir þær rekstrareiningar sem
falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir
alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr.
45/1998. 

Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með
skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustustöð. Til B
hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru
í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar
íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s og Suðurlandsvegur 1-3 ehf. 

Samkvæmt rekstrarreikningi 2010 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.015,0 millj.
kr. samanborið við 971,1 millj. kr. árið 2009. Hækkun milli ára er 4,5%. 

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem
námu samtals 928,5 millj.kr., en voru 984,9 millj. kr. á árinu 2009. Lækkun frá
fyrra ári nemur 5,7%. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2011 námu 83,7 millj.
kr. samanborið við 118,5 millj. kr.árið 2009. Lækkun fjármagnsgjalda umfram
fjármunatekjur milli ára skýrist af hagstæðari þróun gengis og verðlags á árinu
2010 samanborið við árið 2009. 

Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 5,0 millj. kr. fyrir A og B hluta
samanborið við neikvæða rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 130,7 millj. kr. á árinu
2009. 



Frekar upplýsingar veita:

Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri, gunnsteinn@rang.is og í síma 488-7000
Indriði Indriðason, aðalbókari, indridi@rang.is og í síma 488‐7000