2014-04-07 18:35:24 CEST

2014-04-07 18:36:25 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur mars 2014


Í mars flutti félagið 159 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 10%
fleiri en í mars á síðasta ári. Framboðsaukning  í sætiskílómetrum nam 17%.
Framboðsaukning til N-Ameríku var 28% m.a. vegna flugs á nýjan áfangastað í
leiðakerfinu, Edmonton, ásamt því að flug til Toronto og Washington og var
aukið töluvert. Framboðsaukning á Evrópuleiðum nam 5%. Sætanýting var 78,2% og
lækkaði um 1,1 prósentustig á milli ára. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 24 þúsund í mars sem er
fækkun um 7% á milli ára.  Framboð félagsins í mars var dregið saman um 4%
samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 72,0% og dróst saman um 2,1
prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 21% á milli
ára.  Fraktflutningar í áætlunarflugi jukust um 10% frá því á síðasta ári.
Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 8% miðað við mars 2013.
Herbergjanýting var 78,5% en hún nam 72,7% í mars í fyrra. 



MILLILANDAFLUG               MAR 14   MAR 13   BR. (%)      ÁTÞ 14   BR. (%)    
--------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega               159.314  144.997          10%  397.250          11%
Sætanýting                     78,2%    79,2%  -1,1 %-stig    74,3%   0,2 %-stig
Framboðnir sætiskm.            615,9  526.363          17%  1.578,5          15%
 (ASK'000.000)                                                    
INNANLANDSFLUG OG            MAR 14   MAR 13   BR. (%)      ÁTÞ 14   BR. (%)    
 GRÆNLANDSFLUG                                                                  
--------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                24.089   26.016          -7%   65.122          -8%
Sætanýting                     72,0%    74,2%  -2,1 %-stig    70,5%  -0,2 %-stig
Framboðnir sætiskm.             11,1   11.578          -4%     29,5          -6%
 (ASK'000.000)                                                                  
LEIGUFLUG                    MAR 14   MAR 13   BR. (%)      ÁTÞ 14   BR. (%)    
--------------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                100,0%    90,0%  10,0 %-stig   100,0%  18,0 %-stig
Seldir blokktímar              1.807    2.275         -21%    6.113         -15%
FRAKTFLUTNINGAR              MAR 14   MAR 13   BR. (%)      ÁTÞ 14   BR. (%)    
--------------------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm.            15.607   14.586           7%   42.828           7%
 (ATK´000)                                                                      
Seldir tonnkm. (FTK´000)       8.799    7.994          10%   24.285           8%
HÓTEL                        MAR 14   MAR 13   BR. (%)      ÁTÞ 14   BR. (%)    
--------------------------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur         22.909   22.940           0%   66.569           0%
Seldar gistinætur             17.973   16.671           8%   44.812           7%
Herbergjanýting                78,5%    72,7%   5,8 %-stig    67,3%   4,4 %-stig



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010