2014-03-31 10:31:03 CEST

2014-03-31 10:32:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Nýr forstjóri ráðinn hjá Hampiðjunni


Stjórn Hampiðjunnar hf. hefur ráðið Hjört Erlendsson sem forstjóra Hampiðjunnar
frá og með 1. júní nk.  Hjörtur er 55 ára tæknifræðingur og hefur starfað hjá
Hampiðjunni frá september 1985.  Hann hefur síðustu 11 ár verið
framkvæmdastjóri Hampidjan Baltic í Litháen, ásamt því að vera staðgengill
forstjóra Hampiðjunnar.