2017-05-11 17:29:25 CEST

2017-05-11 17:29:25 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

HB Grandi mun sameina botnfiskvinnslu


Á fundi trúnaðarmanna HB Granda og forsvarsmanna HB Granda á Akranesi 11. maí
2017, var farið yfir áform um að leggja af fiskvinnslu í botnfiskvinnslu sinni
á Akranesi. Að höfðu samráði við fulltrúa starfsmanna og stéttarfélaga hafa
staðið yfir viðræður við Akraneskaupstað og einnig hafa fengist upplýsingar frá
Faxaflóahöfnum og Reykjavíkurborg. Viðræðurnar hafa nýst vel til gagnkvæmra
upplýsinga og munu gagnast aðilum til framtíðar. 

Niðurstaða viðræðna hefur þó ekki breytt þeim áformum HB Granda að sameina
botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi við botnfiskvinnslu félagsins í Reykjavík
þann 1. september næstkomandi. 

Hjá HB Granda og dótturfélögum á Akranesi starfa 270 manns, þar af vinna 86 við
botnfiskvinnsluna sem fá uppsagnarbréf fyrir næstu mánaðamót. Samtímis og
jafnframt verður starfsfólki boðið að sækja um önnur störf hjá HB Granda og
dótturfélögum í Reykjavík og á Akranesi. Vonir standa til að hægt verði að
bjóða öllu starfsfólki sem þess óskar starf við hæfi. 

Starfsfólk sem ekki fær vinnu við hæfi býðst aðstoð við atvinnuleit á vegum HB
Granda. HB Grandi mun hafa samráð við trúnaðarmenn og stéttarfélög þeirra. 

HB Grandi rekur eftir sem áður uppsjávarvinnslu, fiskimjölsverksmiðju og
dótturfélögin Norðanfisk og Vignir G. Jónsson á Akranesi. Félagið mun leggja
kraft í að efla þessar rekstrareiningar og fullvinnslu sjávarafurða á Akranesi. 

Forráðamenn Akraneskaupstaðar og HB Granda munu halda áfram viðræðum um að
standa að frekari uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi. Einn liður í því er að
fulltrúar Akraneskaupstaðar í Faxaflóahöfnum beiti sér fyrir því að ráðist
verði í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir á Akraneshöfn.