2009-08-31 15:27:58 CEST

2009-08-31 15:28:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Ársreikningur

Íbúðalánasjóður - Árshlutareikningur - 6 mán. 2009


Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2009
var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins í dag, 31. ágúst 2009.
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla
(IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34. 

Hagnaður var af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 463
millj. kr. skv. rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 13.748
millj.kr. skv. efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sjóðsins, sem reiknað er
skv. ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð, er 4,3%. Hlutfallið er
reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið
sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. 

Eins og greint er frá í skýringu nr. 8 á sjóðurinn innlán hjá SPRON og Straumi
-Burðarás fjárfestingarbanka hf. Ágreiningur er uppi um skilgreiningu þeirra
innlána. Ef þessi innlán verða skilgreind sem almennar kröfur má reikna með að
tap sjóðsins geti numið um 3,5 milljörðum kr. sé miðað við áætlanir
slitastjórnar félaganna um endurgreiðsluhlutfall á ótryggðum kröfum. 

Nánari upplýsingar veita Guðmundur Bjarnason, Ívar Ragnarsson og Ásta H.
Bragadóttir í síma 569 6900.