2009-08-31 15:45:22 CEST

2009-08-31 15:46:23 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. 
Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar
verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi
sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. 

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem
sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun
hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir
hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu
lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í
afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til
skuldareigenda. Í lok júní 2009 námu eftirstöðvar lánsins 325 millj. kr. og
eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 

Tekjuafgangur sambandsins á tímabilinu 1/1-30/6 2009 nam um 7,2 milljónum kr.
og eigið fé í lok júní 2009 nam 70,4 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi.
Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur
sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. 

Guðjón Guðmundsson er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og
veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.