2009-05-22 11:23:26 CEST

2009-05-22 11:24:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
VBS Fjárfestingarbanki hf. - Niðurstöður hluthafafunda

- Aðalfundur


Aðalfundur VBS fjárfestingarbanka hf. var haldinn í dag, miðvikudaginn, 20. maí
í húsakynnum bankans við Borgartún 26. 

Á fundinum var farið yfir skýrslu stjórnar um starfsemi síðasta rekstrarárs og
ársreikningur félagsins fyrir árið 2008 lagður fram til staðfestingar og
samþykktur.  Þá var tillaga stjórnar um ráðstöfun á hagnaði félagsins samþykkt
auk nokkurra breytinga á samþykktum félagsins. 

Að síðustu var ný stjórn félagsins kjörin en sjálfkjörið var í stjórnina. 
Eftirfarandi voru kjörnir: 

Aðalstjórn:
Sigrún Helgadóttir,
Páll Þór Jónsson, 
Páll Þór Magnússon,
Willum Þór Þórsson, 
Þröstur Leósson. 

Varastjórn:
Angantýr V. Jónasson,
Birgir Ómar Haraldsson, 
Frank Pitt,
Símon Sigurður Sigurpálsson,
Sigurður Haukur Gíslason.

Á fyrsta fundi stjórnar sem haldin var strax að loknum hluthafafundi var Páll
Þór Magnússon kjörin stjórnarformaður og Sigrún Helgadóttir varaformaður. 

Þegar litið er fram á veginn eru margir óvissuþættir í ytra umhverfi
fjármálafyrirtækja sem geta haft áhrif á afkomu VBS fjárfestingarbanka sem og
annarra fyrirtækja á Íslandi. Á heildina litið hefur þó ýmislegt áunnist og
þokast í rétta átt.  Það sem af er ári 2009 hefur rekstur, stefna og markmið
bankans verið áfram í endurskoðun þar sem lögð hefur verið mikil áhersla á
virka stjórnun og aðlögun áætlana að gerbreyttum aðstæðum.  Áætlanir eru
miðaðar að áframhaldandi sókn með þá trú að í erfiðleikunum felist mikilsverð
viðskiptatækifæri fyrir bankann.  Framundan eru krefjandi verkefni fyrir
starfsfólk VBS fjárfestingarbanka  svo sem umsókn um viðskiptabankaleyfi sem
opnar nýja möguleika til útvíkkunar á starfsemi bankans. Auk nýrra tækifæra mun
bankinn áfram einbeita sér að eflingu kjarnastarfseminnar með það að markmiði
að  leggja sitt af mörkum til að taka þátt í uppbyggingu íslensks athafnalífs. 

Frekari upplýsingar veitir:
Jón Þórisson, forstjóri VBS fjárfestingarbanki, sími: 842-2202