|
|||
2013-11-13 17:10:05 CET 2013-11-13 17:11:05 CET REGULATED INFORMATION FÍ Fasteignafélag slhf. - FyrirtækjafréttirFÍ fasteignafélag gerir samning um kaup á fasteigninni Flatahrauni 12, Hafnarfirði, húsnæði Iðnskólans í Hafnarfirði.FÍ fasteignafélg slhf., kt. 571212-0210, hefur gert samning um kaup á fasteigninni Flatahrauni 12 Hafnarfirði, fastanúmer 224-3269, sem er 4.450 fermetra hús með langtímaleigusamning við Iðnskólann í Hafnarfirði. Samningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun FÍ og samþykki stjórnar félagsins að henni lokinni. Gert er ráð fyrir afhendingu og afsali á fyrsta fjórðungi 2014. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FÍ, Örn V. Kjartansson s. 8259000, orn@fifasteignir.is |
|||
|