2009-10-08 11:54:09 CEST

2009-10-08 11:55:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvaki - Fyrirtækjafréttir

- Yfirlýsing frá Landsvaka vegna fréttar í Morgunblaðinu 8. október 2009.


Í Morgunblaðinu í dag, 8. október 2009, er greint frá því að bréf í Kaupþingi
hafi numið 32,3% í peningamarkaðssjóði Landsbankans við lokun sjóðsins þann 6.
október 2008 og að sjóðnum hafi verið óheimilt samkvæmt lögum að fjárfesta
meira en 10% í einum útgefanda. 

Landsvaki hf. vill benda á að Peningabréf Landsbankans var fjárfestingarsjóður
samkvæmt lögum um verðbréfa- og fjárfestingarsjóði nr. 30/2003. Í 54. gr.
lagana er fjallað um fjárfestingarheimildir fjárfestingarsjóða: 

„Fjárfestingarsjóðum er heimilt að binda allt að 20% af eignum sínum í
verðbréfum og peningamarkaðsskjölum útgefnum af sama útgefanda. Þó er heimilt
að binda allt að 35% af eignum sjóðs í skráðum verðbréfum í kauphöll og
peningamarkaðsskjölum útgefnum af sama útgefanda enda sé fjárfesting yfir 20%
aðeins í einum útgefanda“. 

Ekki var því um brot á lögum um fjárfestingarheimildir að ræða eins og haldið
er fram í fréttinni. Í dómi héraðsdóms sem kveðinn var upp 7. október 2009
kemur jafnframt fram að fjárfestingar sjóðsins hafi verið innan þess ramma sem
kveðið er á um í reglum sjóðsins.