2014-08-28 18:19:45 CEST

2014-08-28 18:20:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Interim information (is)

Sex mánaða árshlutareikningur 2014


Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga.

  -- Rekstrartekjur minnkuðu um 0,8% og voru 26,4 m€ (26,6 m€).
  -- Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 3,2 m€ (4,6 m€).
  -- Hlutdeild í afkomu HB Granda var 0,9 m€ til tekna (1,5 m€ til tekna).
  -- Hagnaður tímabilsins var 2,6 m€ (4,2 m€).
  -- Heildareignir voru 91,5 m€ (88,7 m€).
  -- Vaxtaberandi skuldir voru 24,3 m€ (24,2 m€).
  -- Eiginfjárhlutfall var 63% (63%).



Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 26,4 m€ og minnkuðu um 0,8% frá fyrstu sex
mánuðum fyrra árs.  Minni sala í Danmörku á tímabilinu var vegin upp af innkomu
Swan Net USA í samstæðuna. 

Rekstrarhagnaður fyrir aðrar tekjur og gjöld var 14,4% af rekstrartekjum eða
3,8 m€ en var 13,6% fyrir sama tímabil á fyrra ári, eða 3,6 m€. 

Greiðslur til fv. forstjóra við starfslok vega þungt í rekstrinum en sú upphæð
kemur til gjalda sem 1,6 m€. 

Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í hagnaði HB Granda, að frádregnum
fjármagnsgjöldum, voru 0,6 m€ til tekna en var 1,0 m€ til tekna fyrstu sex
mánuðina á fyrra ári. 

Hagnaður tímabilsins var 2,6 m€ en var 4,2 m€ sama tímabil fyrra árs.



Efnahagur

Heildareignir voru 91,5 m€ í lok tímabilsins.  Eigið fé nam 57,2 m€,  en af
þeirri upphæð eru 7,4 m€ hlutdeild minnihluta í eigin fé Swan Net Gundry á
Írlandi, Fjarðaneta á Íslandi, Nordsötrawl í Danmörku og Swan net USA. 
Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok júní 63%
af heildareignum samstæðunnar. 

Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 24,3 milljónum sem er nánast sama fjárhæð og
var í byrjun ársins. 



Hjörtur Erlendsson, forstjóri:

„„Salan fyrrihluta ársins er svipuð og á sama tímabili síðasta árs þrátt fyrir
erfiðar markaðsaðstæður í Danmörku.  Velta Swan Net USA sem bætist við
samstæðuna á þessu ári hefur að mestu vegið upp minni sölu þar. 
Rekstarhagnaður fyrir aðrar tekjur og gjöld er hærri en á sama tímabili í
fyrra.  Greiðslur til fv. forstjóra við starfslok setja mark á uppgjörið og
veldur því að hagnaður tímabilsins er minni en árið áður ásamt því að hlutdeild
í afkomu HB Granda minnkar frá fyrra ári.“ 








Árshlutareikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf.,  www.hampidjan.is.