2016-05-30 18:13:05 CEST

2016-05-30 18:13:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 21. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 350.000 eigin hluti fyrir
28.945.000 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin   Tími       Keyptir  Viðskipta-ve    Kaupverð      Eigin hlutir eftir
g                       hlutir            rð                           viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
23.5.2016  09:34       350.000          82,7  28.945.000               7.276.109
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                350.000                28.945.000                        
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða
endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 15. mars 2016. 

Reitir hafa nú keypt samtals 7.276.109 hluti í félaginu sem samsvarar 43,57% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 628.053.217 krónum. Reitir eiga nú samtals
8.679.329 hluti, eða 1,17% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á
aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við
hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.