2015-03-24 10:45:45 CET

2015-03-24 10:46:20 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Stefna vegna innbrots í tölvukerfi


Fjarskiptum hf. hefur borist stefna þar sem gerð er krafa um bætur vegna tjóns
sem einstaklingur telur sig hafa orðið fyrir vegna innbrotsþjófnaðar erlends
tölvuhakkara á heimasíðu Vodafone í nóvember 2013 og í kjölfarið dreifingu
þjófsins og annarra á hinum stolnu gögnum. Gerð er krafa um skaða- og miskabætur
að fjárhæð kr. 90.000.000 auk vaxta og málskostnaðar. Er þetta önnur stefnan
vegna innbrotsins, sbr. fyrri tilkynning dags. 3. febrúar 2015.

Sem fyrr telur félagið verulegan vafa leika á bótaskyldu og að dæmdar fjárhæðir,
telji dómstólar bótaskyldu yfir höfuð til staðar, hafi í öllu falli óveruleg
áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Fyrir liggur að stefnufjárhæð er í engu
samræmi við dómafordæmi í skaða- og miskabótamálum hér á landi. Gerð verður
grein fyrir þessari og mögulegum frekari málshöfðunum í skýringum
ársfjórðungsuppgjöra eða eftir því sem við getur átt.


[HUG#1905776]