2015-03-25 14:45:08 CET

2015-03-25 14:46:08 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Fyrirtækjafréttir

HB Grandi: Lánveiting til dótturfélags í Síle


HB Grandi hefur gengið frá lánssamningi þar sem félagið lánar dótturfélagi
sínu, Grandi Limitada í Síle alls USD 8.014.000. Lánsfjárhæðin verður lánuð
áfram til Deris S.A. í Síle, en Grandi Limitada er eignarhaldsfélag um 20%
eignarhlut HB Granda í eignarhaldsfélaginu Deris.  Lánið mun bera 6 mánaða
LIBOR vexti auk 3% álags.  Láninu verður varið til fárfestinga í sjávarútvegi í
Síle. 



Nánari upplýsingar veitir:

Jónas Guðbjörnsson fjármálastjóri, s. 858 1031.