2015-03-25 14:46:14 CET

2015-03-25 14:47:14 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
RARIK ohf. - Fyrirtækjafréttir

Rarik ohf. og Landsbankinn hafa gengið frá skammtímafjármögnunarsamningi.


RARIK og Landsbankinn undirrituðu í dag samning vegna skammtímafjármögnunar.
Samningurinn gerir RARIK kleift að velja sér hagkvæman tíma til
endurfjármögnunar langtímalána sem fyrirhuguð er á árinu, án tillits til
gjalddaga þeirra. 

Samningsfjárhæðin er 4.750 milljónir króna og tekur samningurinn gildi í dag og
gildir til 5. maí 2016.  Samningurinn felur í sér að RARIK hefur heimild til
þess að nýta lánsfjárhæðina eftir þörfum. 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma
528-9000.