|
|||
2009-11-26 09:52:40 CET 2009-11-26 09:53:40 CET REGULATED INFORMATION BYR - sparisjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum- Tímabundar breytingar hjá sparisjóðsstjóra ByrsÁ fundi stjórnar Byrs sparisjóðs miðvikudaginn 25. nóvember 2009 óskaði Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri eftir tímabundinni lausn frá störfum og samþykkti stjórn það. Þessi ráðstöfun var gerð í fullri sátt á milli aðila og hefur stjórn Byrs sparisjóðs óskað eftir áframhaldandi starfskröftum Ragnars við þá fjárhagslegu endurskipulagningu sjóðsins sem í gangi er í samvinnu sjóðsins og kröfuhafa. Tímabundið mun Jón Finnbogason, hdl., taka við störfum Ragnars en hann hefur gegnt starfi forstöðumanns á fjármálasviði Byrs. |
|||
|