2015-01-30 10:08:00 CET

2015-01-30 10:09:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Skipulagsbreytingar hjá Sjóvá


Ómar Svavarsson tekur sæti í framkvæmdastjórn

Sjóvá hefur breytt skipuriti sínu samhliða því að breytingar hafa verið gerðar
á framkvæmdastjórn félagsins. 

Vátryggingasvið mun breyta um nafn og kallast nú viðskiptaþróun. Undir sviðið
heyra stofnstýring og vöruþróun. Þá færast markaðsmál og forvarnir undir
sviðið. Elín Þórunn Eiríksdóttir er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, en hún
var áður framkvæmdastjóri sölu- og ráðgjafar. Lögfræðiþjónusta færist til
tjónasviðs og endurtryggingar til fjármálasviðs. 

Ómar Svavarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar. Ómar
starfaði sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs Vodafone frá árinu 2005 og
forstjóri frá 2009 en hann starfaði hjá Sjóvá frá 1995 til 2005 síðast sem
framkvæmdastjóri einstaklingssviðs. 

Áhættustýringu hefur verið skipt upp til að aðgreina verkefni
tryggingastærðfræðings,  gagnavinnslu og greiningar annars vegar og
eftirlitshlutverk áhættustjóra hins vegar. Steinunn Guðjónsdóttir verður
forstöðumaður trygginga- og tölfræðigreiningar. Þóra Pálsdóttir hefur verið
ráðin áhættustjóri, en hún var áður sérfræðingur í áhættustýringu. 

Hermann Björnsson, forstjóri: „Ég er mjög ánægður með þessar breytingar á
skipulagi félagsins og bind miklar vonir við að þær efli okkur enn frekar í
samkeppni og síbreytilegu umhverfi þar sem gagnavinnsla og vöruþróun verða
nauðsynleg til að svara þörfum markaðarins.“ 

Meðfylgjandi er nýtt skipurit félagsins. Nánari upplýsingar veitir Hermann
Björnsson, forstjóri.