2012-02-27 23:37:20 CET

2012-02-27 23:38:21 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Ársreikningur 2011


Ársreikningur Byggðastofnunar 2011

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2011, var staðfestur af stjórn
stofnunarinnar 27. febrúar 2012. 

Aðalstarfsemi Byggðastofnunar er að veita lán eða annan fjárhagslegan stuðning
í því skyni meðal annars að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum og
koma í veg fyrir að óæskileg byggðaröskun eigi sér stað eða að lífvænlegar
byggðir fari í eyði. 

Samkvæmt rekstrarreikningi nam tap af rekstri stofnunarinnar 235,7 milljónum
króna á árinu 2011.  Eigið fé í árslok samkvæmt efnahagsreikningi var 266,3
milljón króna    Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var
1,34% 

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar fyrir árið 2011:

  -- Tap stofnunarinnar á árinu nam 235,7 mkr.
  -- Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar um 640 mkr. samanborið við 534 mkr.
     hreinar vaxtatekjur á árinu 2010.
  -- Rekstrartekjur námu 319 mkr.
  -- Almenn rekstrargjöld, styrkir og framlög til atvinnuþróunarfélaga námu 479
     mkr.
  -- Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár nam 711 mkr.
  -- Handbært fé frá rekstri var 707 mkr.
  -- Endanlega töpuð útlán námu 1.861 mkr.
  -- Eignir námu 17.650 mkr. og hafa hækkað um 655 mkr. frá árinu 2010.  Þar af
     voru útlán 14.215 mkr.
  -- Skuldir námu 17.138 mkr. og hafa lækkað um 91 mkr. frá árinu 2010.
  -- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 218 mkr. 
  -- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er 1,34% en skal að
     lágmarki vera 8% af eiginfjárgrunni.
  -- Ríkissjóður greiddi skv. fjárlögum 2011, 1.000 mkr. til stofnunarinnar til
     að auka eigið fé hennar.

Um ársreikninginn

Í árslok var eiginfjárhlutfall 1,34% eins og að ofan greinir. Ákvæði laga um
fjármálafyrirtæki segja til um að eigið fé skuli að lágmarki vera 8% af
áhættugrunni og uppfyllti stofnunin því ekki ákvæði laga þar um í lok árs 2011. 

Horfur

Alþingi samþykkti í fjárlögum 2012 heimild til að efla eigið fé Byggðastofnunar
um allt að 2.000 milljónir króna.  Af því framlagi voru 1.750 milljónir króna
greiddar  til stofnunarinnar í janúar 2012.  Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar
hækkaði með því framlagi sem greitt hefur verið í 10,09% miðað við
efnahagsreikning stofnunarinnar í árslok.  Þegar eftirstöðvar heimildarinnar
verða greiddar stofnuninni mun eiginfjárhlutfall hennar fara í 11,34%.  Ákvæðum
laga um fjármálafyrirtæki um eiginfjárhlutfall voru því uppfyllt í upphafi árs
2012. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is