2024-06-13 11:06:00 CEST

2024-06-13 11:06:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Arion banki hf: Niðurstaða útboðs almennra skuldabréfa í íslenskum krónum. Birt : 2024-06-12 17:00


Ávöxtunarkrafan var ekki rétt í fyrri tilkynningu. Rétt ávöxtunarkrafa er 4,42%

Arion banki hf. lauk í dag útboði á almenna skuldabréfaflokknum ARION 28 1215 fyrir samtals 2.560 m.kr.

Seldir voru 2.560 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,42% í flokknum ARION 28 1215 sem er verðtryggt vaxtagreiðslubréf með vaxtagreiðslum tvisvar á ári. Lokagjalddagi er 15. desember 2028. Heildarstærð flokksins verður 11.300 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 18. júní 2024.

Skuldabréfin eru gefin út undir 3,0 milljarða evra Euro Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu EMTN rammans má nálgast hér: EMTN Grunnlýsing

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.