2019-10-14 11:00:00 CEST

2019-10-14 11:00:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 41 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2.392.021 eigin hluti að kaupverði 36.679.481 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
7.10.201910:3019.07515,45294.709
8.10.201914:27789.98215,5512.284.220
9.10.201910:21789.98215,2512.047.226
10.10.201913:1538.13215,20579.606
10.10.201914:29751.85015,2011.428.120
11.10.201914:493.00015,2045.600
Samtals 2.392.021 36.679.481

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 2. september 2019.

Sjóvá átti 21.324.285 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 23.716.306 eigin hluti eða sem nemur 1,71% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 10.382.973 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,75% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 164.571.384 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum eða sem nemur 1,08% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, en þó aldrei lengur en til 6. mars 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is