|
|||
2008-06-07 15:22:35 CEST 2008-06-07 15:23:35 CEST REGULATED INFORMATION Hf. Eimskipafélag Íslands - ÁrsreikningurEimskip birtir sex mánaða uppgjör þann 19. júní 2008Hf. Eimskipafélag Íslands birtir uppgjör sitt fyrir fyrstu sex mánuði rekstrarársins 2008, þann 19. júní, eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 20. júní, í húsakynnum Eimskips, Sundakletti, að Korngörðum 2. Kynning á uppgjörinu hefst stundvíslega kl. 08:30 og boðið verður upp á léttan morgunverð. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips mun kynna afkomu félagsins og svarar spurningum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Eimskips www.eimskip.is. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóra Samskiptasviðs Sími: 825 7221 / 525 7000 Póstfang: halldor@eimskip.is |
|||
|