2013-02-05 17:01:00 CET

2013-02-05 17:01:03 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboð


Í dag 5. febrúar fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem
bankinn bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í
verðtryggða flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á
fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs.
Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 615.027.841 að nafnverði. 

Samþykkt gengi evru gangvart krónu var 230 í útboðinu.

Þann 1. febrúar var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 111,629093 kr. með
áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 8. febrúar
2013 (krafa 2,65%). 1 

  ____________________

1 Hreint verð (e. clean price) 105,4